157. löggjafarþing — 97. fundur,  20. apr. 2026.

verðbólgusía við hagstjórn opinberra fjármála.

[15:12]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F):

Virðulegur forseti. Það er ljóst að alvarlegt bakslag hefur orðið í baráttunni við verðbólgu þegar hún tók að hækka undir lok síðasta árs og fyrstu mánuði þessa árs. Það eru mjög alvarleg tíðindi fyrir hagstjórnina enda hækka skuldir heimilanna og fyrirtækjanna verulega vegna þessa eða um tugi milljarða. Það er slæmt. Samkvæmt nýrri hagspá Landsbankans hafa gjaldahækkanir hins opinbera spilað stórt hlutverk ásamt því að hækkun olíuverðs vegna átaka í Mið-Austurlöndum hefur haft mikil áhrif. Það er þó ekki einungis utanaðkomandi þáttum um að kenna að verðbólgan hefur aukist heldur hafa til að mynda miklar launahækkanir aukið verðbólguþrýsting. Landsbankinn heldur áfram og segir að miðað við verðbólguspá muni forsenduákvæði í kjarasamningum vegna verðbólgu virkjast í ágúst sem þýðir að heimild skapast til þess að segja upp samningum ef ekki næst að semja um viðbrögð.

Ljóst er að aðgerðir ríkisstjórnarinnar duga ekki til til að auka fyrirsjáanleika og kjölfestu verðbólguvæntinga og því er uppi grafalvarleg staða í efnahagsmálum þjóðarinnar. Ég spyr því hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra hvort ekki væri skynsamlegt að taka upp svokallaða verðbólgusíu við hagstjórn í opinberum fjármálum, verðbólgusíu sem miðar að því að ekki verði farið í aðgerðir ríkissjóðs sem metnar eru þannig að þær ýti undir verðbólgu.