lokun Foreldrahúss.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið þótt rýrt hafi verið. Í rauninni erum við að tala um að hæstv. ráðherra segir: Þetta er ekki á minni könnu. Hæstv. ráðherra situr í hæstv. ríkisstjórn og fer með heilbrigðismál í landinu. Vímuefnavandi ungmenna á Íslandi er heilbrigðismál. Er það í rauninni þannig að það eigi að loka þessu úrræði? Sambandsleysið hefur verið algjört gagnvart Foreldrahúsi sem er 40 ára gömul stofnun sem hefur aðstoðað ungmenni og foreldra ólögráða barna í áratugi. Svörin eru: Ja, síminn er ekki tekinn og ég hef ekki skoðun á þessu máli, þetta er hjá öðrum ráðherra. Einhvern tímann sagði hæstv. forsætisráðherra: Svona gera menn ekki.
Mig langar að spyrja hæstv. heilbrigðisráðherra (Forseti hringir.) hvort hæstv. ráðherra muni ekki beita sér fyrir því að þessu verði við snúið og að Foreldrahús sé ekki að fara að loka núna 1. maí — hæstv. ráðherra situr í (Forseti hringir.) ríkisstjórn — og hún beiti sér fyrir því að foreldrar hús verði áfram opið eftir mánaðamótin.