157. löggjafarþing — 99. fundur,  22. apr. 2026.

upplýsingagjöf vegna greiðslna fyrir veitta heilbrigðisþjónustu.

[15:19]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið en hér er ekki verið að tala um neitt ólögmæti eða neitt svoleiðis heldur snýst þetta um að allar upplýsingar séu uppi á borðum. Mér er fullkunnugt um að það hefur verið svolítið djúpt á þessum upplýsingum sem fjölmiðlar hafa verið að reyna að fá. Það sem ég hef verið að spyrja um hér er mál sem hæstv. ráðherra er að leggja fram. Hún er búin að mæla fyrir frumvarpi sem gerir kröfu um auknar upplýsingar og gagnsæi þegar kemur að greiðslum úr ríkissjóði. Hæstv. ráðherra hefur átt slíkt félag í 13 ár án þess að leggja fram ársreikninga. Hæstv. ráðherra vill ekki samlagsfélög samkvæmt frumvarpinu, m.a. af því að þau birta ekki ársreikninga. Ráðherra vill að öll félög birti ársreikninga eins og kemur fram í frumvarpinu en ráðherra birti einn ársreikning fyrir tíu árum síðan. Nú vill ráðherra ganga lengra en birting ársreikninga og heimila Sjúkratryggingum að fá nánari upplýsingar sem koma fram í ársreikningum en sjálf vill hæstv. ráðherra ekki birta neitt. Því spyr ég: (Forseti hringir.) Til hvers er ráðherra að leggja fram frumvarp sem stóreykur kröfur til félaga eins og í hennar eigu ef hún sér ekki eina einustu ástæðu til að sýna gott fordæmi og fylgja kröfum í eigin frumvarpi og birta þessa ársreikninga?