samvinna tollgæslu og löggæslu á landamærum.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Þorsteini Sæmundssyni kærlega fyrir spurninguna. Hann spyr um innflutning fíkniefna og afleiðingar þess innflutnings á fólkið í landinu og um aðgerðir okkar stjórnvalda þar um. Fyrst hvað varðar samstarf mitt við hæstv. fjármálaráðherra þá er það með miklum ágætum. En af því að hann er líka að tala um hvernig ólíkar stofnanir undir hatti ríkisstjórnarinnar vinna saman þá er það þannig að það er mjög skýr tónn í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar hvað varðar aðgerðir gegn skipulagðri brotastarfsemi. Við fórum í það á fyrsta ári t.d. að fjölga í löggæslu um 50 manns. Við erum í markvissum aðgerðum hvað varðar landamæri, t.d. í gegnum Schengen-samstarfið. Og af því að hv. þingmaður talar um tollinn myndi ég ekki síður setja flugvöllinn inn í það samtal en vitaskuld skiptir máli hvað er að gerast hringinn í kringum landið og þar eru hafnirnar líka undir. Ég er sammála þingmanninum um að við þurfum að gera betur þegar kemur að tækjabúnaði, bæði hjá tolli og hjá löggæslu. Það er í smíðum núna í mínu ráðuneyti löggæsluáætlun, sem er heildarstefna og aðgerðir til næstu ára, sem á einmitt að tryggja að kerfið í heild sinni nái sem bestum mögulegum árangri, og ég er að leggja fram frumvarp í haust með tilteknum aðgerðum gegn skipulagðri brotastarfsemi. En ég tek undir áhyggjur þingmannsins hvað varðar búnað hjá tollgæslu og lögreglu og ég er eindregið þeirrar skoðunar að þar þurfum við að gera betur.