157. löggjafarþing — 100. fundur,  27. apr. 2026.

utanríkis- og alþjóðamál 2025.

629. mál
[19:10]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Sigmari Guðmundssyni kærlega fyrir fyrirtaks spurningu sem snýr að stærstu leyti að innflutningi á úkraínskum tollfrjálsum kjúklingum sem var mikið hitaefni á sínum tíma sem, ef ég man rétt, hv. þingmaður hafði stórar og miklar skoðanir á hér. Þetta er nú bara gott og blessað og skemmtilegt umtalsefni en ég man hins vegar ekki eftir að hafa séð á þeim 154 blaðsíðum sem hæstv. utanríkisráðherra er að skrifa í sína skýrslu að á þetta stórpólitíska mál hafi verið minnst. Ég vona að það hafi ekki laskað samskipti Íslands og Úkraínu sem ég held að séu með ágætum þrátt fyrir að við höfum verndað okkar kjúklingabændur með því að leggja þessa tollvernd á aftur. Ég held í ljósi þeirra stóru mála sem hæstv. utanríkismálaráðherra er nú að benda á í sínum 154 síðum að við hv. þingmaður hljótum að geta komist að samkomulagi um að stóra Úkraínukjúklingamálið sé kannski ekki það sem brennur mest á þingi og þjóð þessa dagana.

Það er hins vegar ýmislegt sem hv. þingmaður kom inn á sem er mjög athyglisvert, þ.e. hvort við guggnum þegar á reynir. Ég held að stundum, því miður, í gegnum tíðina höfum við gert það og ég tel það miður. Ef við ætlum að láta taka okkur alvarlega meðal annarra þjóða og vera þjóð á meðal þjóða þá verðum við Íslendingar að standa fast á okkar og senda þau skilaboð út að við stöndum með okkar samherjum og að við stöndum á okkar prinsippum.