utanríkis- og alþjóðamál 2025.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Guðlaugi Þór Þórðarsyni fyrir þetta. Já, við erum auðvitað að leita leiða til þess og erum að bæta í útgjöld sem tengjast beint varnar- og öryggismálum. Við höfum metnaðarfull markmið um að vera öflugt gistiríki, bara svo dæmi sé tekið. Það er auðvitað verið að vega það og meta hjá ríkjum Atlantshafsbandalagsins, og Íslandi þar með talið, hvað það er sem gæti t.d. fallið undir þetta 1,5% og hvar þurfi mögulega að bæta í og þar fram eftir götunum. Ég var ekkert að leiða einhver rök að því hér í minni ræðu að Evrópusambandið myndi eitt og sér verja Ísland. Ég tók það skýrt fram að ég held það sé nokkuð almenn samstaða um það hér í þessum sal að varnarsamningurinn við Bandaríkin og aðildin að NATO séu hryggjarstykkið í okkar vörnum. Varnarsamningurinn við Bandaríkin er beintengdur veru okkar í NATO og það eru Bandaríkjamenn sem í raun og veru verja okkur í gegnum aðildina. Út á það gengur samningurinn. Það hefur verið þannig á undanförnum árum að einstök ríki Evrópu hafa verið að bæta verulega í sínar varnir. Evrópusambandið hefur líka verið að bæta í sínar aðgerðir. Ég nefndi t.d. hér áðan að þó að Evrópa verji ekki Dani þá fóru Danir samt sem áður undir varnarhluta Evrópusambandsins. Það er einhver ástæða fyrir því. Ég lít svo á að við séum með þessu bara ofur einfaldlega að fjölga þeim kostum sem við getum gripið til í okkar vörnum og öryggismálum í víðu samhengi, þ.e. við erum með varnarsamninginn, við erum í NATO og við erum líka í góðu og þéttu samtali við ríki Evrópusambandsins. Ríki Evrópusambandsins bera núna meginþungann af því að verja Úkraínu. Bandaríkjamenn hafa dregið verulega úr stuðningi sínum þar, (Forseti hringir.) það er hluti af þessari breyttu heimsmynd sem ég var að nefna og við Íslendingar þurfum að staðsetja okkur í þessu. Ég er ekki að segja að Evrópa muni verja okkur í staðinn fyrir NATO eða Bandaríkin, (Forseti hringir.) þetta er allt bara hluti af einhverri heild. Rétt eins og Danir endurmátu sitt, rétt eins og Svíar og Finnar endurmátu sitt með því að ganga inn í Atlantshafsbandalagið. (Forseti hringir.) Þetta er bara hagsmunamat sem verður að eiga sér stað á hverjum tíma og þetta er hluti af jöfnunni.