utanríkis- og alþjóðamál 2025.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ágætisspurningar. Varðandi viðveruna í Evrópu, virðulegi forseti, svo ég fari nú bara yfir alla þættina, þá er það þannig að ég held, í það minnsta frá því að George Bush eldri var, að allir bandarískir forsetar hafa kallað eftir því að Evrópa taki meiri þátt í sínum vörnum. Það er kannski ekki nýtt. Ég hef áhyggjur af því oft hvað nákvæmlega og þá sérstaklega forsetinn er að vísa í þegar kemur að Rússum eða Pútín, getum við sagt. Mér finnst það ekki vera ljóst, það veldur oft áhyggjum, og svo sannarlega ekki með Úkraínu líka. En sömuleiðis eru þessar ESB-áherslur Trumps ekki mér að skapi því hv. þingmaður er hér að lýsa stefnu Evrópusambandsins líka. Viðskiptastefna Evrópusambandsins hefur verið mjög skýr. Ég hef verið mjög gagnrýninn á hana. Það er mjög skýrt að þeir ætla sér að vera með verndarráðstafanir og hafa verið með þær, mest í gegnum tæknilegar viðskiptahindranir, við þekkjum það, Íslendingar, en sömuleiðis með tolla. Forystumenn Evrópusambandsins hafa ekkert farið í felur með það, aldrei. Og Evrópusambandið hikar ekki við að skipta sér af málum innan sinna aðildarríkja, pólitískum málum. Það hefur skrifað að það ætli núna í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar að reyna að hafa áhrif hér á Íslandi. Ég er mjög forvitinn að vita hvert þessar 8.000 milljónir fóru, aðlögunarstyrkir — nú vilja sumir segja að það hafi ekki verið aðlögunarstyrkir — hvað það var. Tolla- og viðskiptastefna Evrópusambandsins er verndarstefna. Það hefur aldrei verið í forystu nokkurn tímann þegar kemur að fríverslun á alþjóðavettvangi. Ég hef mjög miklar áhyggjur af viðskiptastefnu Bandaríkjanna því að nú erum við ekki með neinn aðila sem er að tala fyrir frjálsum viðskiptum, af þessum stóru aðilum, því sannarlega hefur Evrópusambandið aldrei gert það vegna þess að þetta er verndarbandalag og þeir trúa á það (Forseti hringir.) að það sé besta leiðin til að ná betri lífskjörum innan Evrópu.