157. löggjafarþing — 101. fundur,  28. apr. 2026.

Geðheilbrigðismál.

[15:07]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Alma D. Möller) (Sf):

Frú forseti. Það er rétt að það var gerður þríhliða samningur við Janus í tíð síðustu ríkisstjórnar og honum var líka rift. Það er algjörlega óumdeilt að þann 8. nóvember var skrifað undir samningslok. Þar segir orðrétt, með leyfi forseta:

„Samningurinn er tilraunaverkefni og ljóst að forsendur þríhliða samnings eru ekki lengur til staðar. Samningsaðilar sammælast með viðauka þessum um að tryggja farsæl samningslok.“

Það er alveg ljóst að hér fór ekkert á milli mála því að því til staðfestingar þá veitti þáverandi ráðherra aukið fjármagn til að ljúka mætti samningi farsællega. Ég get sýnt þennan samning þeim sem vilja.

Það var rætt um bið eftir greiningu. Það er rétt að nú bíða 785 eftir greiningu vegna gruns um einhverfu hjá Geðheilsumiðstöð barna og þarna er um að ræða mikinn uppsafnaðan vanda sem unnið er að að leysa. Frá því að ég tók við höfum við styrkt Geðheilsumiðstöð barna um 95 milljónir og 35 tímabundið. Alls jók þessi ríkisstjórn fjárhæð til geðheilbrigðismála um 2 milljarða á þessu ári. Það er líka unnið að styrkingu Ráðgjafar- og greiningarstöðvar sem er undir forræði félagsmálaráðherra og ég minni á að einhverfa er fötlun en ekki sjúkdómsgreining. Ég minni líka á að vímuefnavandi barna sem hér var ræddur er samkvæmt barnaverndarlögum á forræði barnamálaráðherra. En að öllu þessu er unnið.

Hér var minnst á sjálfsvíg og þá vil ég minna alla þá sem hafa sjálfsvígshugsanir á að leita aðstoðar hjá Píeta eða í hjálparsíma Rauða krossins 1717.

Ég vil að lokum þakka þingmönnum og málshefjanda fyrir góða umræðu og hvet til yfirvegaðrar og málefnalegrar umræðu um geðheilbrigðismál (Forseti hringir.) sem og heilbrigðismál almennt.