157. löggjafarþing — 102. fundur,  29. apr. 2026.

Störf þingsins.

[15:20]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M):

Virðulegur forseti. Danska dagblaðið Berlingske birti á dögunum greinar um meinta spillingu í íslensku atvinnulífi. Fyrirsögnin var eitthvað á þá leið að 19 heimildarmenn segja frá pólitískum þrýstingi og spillingu í stoltum sjávarútvegi Íslands. Það er vísað til þess í fyrirsögninni að á Íslandi ríki einhvers konar óligarkí og hafi ríkt í áratugi. Umfjöllun Berlingske er að sögn til komin vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar um ESB. En það er lítið annað en endurtekning á samsæriskenningum ákafamanna sem í áraraðir hafa hér á landi talað niður nánast allt í íslensku samfélagi. Svo langt er gengið að stjórnskipuninni á Íslandi er lýst sem þjófræði, óligarkaræði, hér séu allar ákvarðanir teknar af illum hug.

Það sem vakti athygli mína og vonbrigði, djúp vonbrigði, var að hæstv. fjármálaráðherra lætur hafa eftir sér í þessari grein að íslenskt samfélag einkennist af sérhagsmunum og frændhygli. Atvinnuvegaráðherra lætur hafa eftir sér í kjölfar þessarar umræðu að það sé ekkert leyndarmál að það séu gríðarlega sterk tengsl á milli ákveðinna fyrirtækja og einstakra stjórnmálamanna eða flokka og þá er hæstv. ráðherra að vísa til lagabreytinga varðandi veiðigjald síðasta sumar og hellir hér olíu á eld þessara ákafamanna sem hafa í áraraðir talað niður allt í íslensku samfélagi. Nú hefur fréttastjóri RÚV viðurkennt að hafa haft veður af þessari umfjöllun og þess vegna hafi RÚV getað skrifað frétt upp úr umfjöllun Berlingske áður en hún birtist.

Virðulegur forseti. Það er miklu nær að halda að umfjöllun Berlingske sé hreinlega runnin undan rifjum starfsmanna RÚV eða unnin a.m.k. í samstarfi við þá einhverja. Efnistökin eru þannig og vitnað í efni frá RÚV sem blaðamenn Berlingske eru tæplega læsir á. Hér er oft á tíðum og iðulega núna spurt um áhrif útlendinga á stjórnmál á Íslandi, áhrif þeirra á þjóðaratkvæðagreiðsluna t.d. sem fer fram hér. (Forseti hringir.) Væri ekki nær að hefja leitina að þessum áhrifum og skoða hvernig umfjallanir erlendra fjölmiðla eru í síendurteknum mæli (Forseti hringir.) upptalning á samsæriskenningum fjölmiðlamanna sem þekktir eru af því að hafa allt á hornum sér hér á landi?