157. löggjafarþing — 102. fundur,  29. apr. 2026.

Störf þingsins.

[15:42]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S):

Frú forseti. Aðeins um Reykjavíkurflugvöll og sjúkraflugið. Reykjavíkurflugvöllur er ekki aðeins samgöngumannvirki, hann er öryggismannvirki. Hann er hluti af heilbrigðiskerfinu, hluti af almannavörnum, mikilvægur varaflugvöllur og lífæð landsbyggðarinnar. Þegar við ræðum framtíð flugvallarins verðum við að horfa á þetta stóra samhengi, ekki aðeins skipulagsmál innan borgarmarka eins og meiri hlutinn í Reykjavík hefur lagt áherslu á á síðastliðnum árum. Hér má geta þess að í húsnæðisáætlun Reykjavíkur fyrir árin 2025–2034, samþykktri 15. maí í fyrra, 2025, er ekki gert ráð fyrir Reykjavíkurflugvelli í Vatnsmýrinni og greinilega litið á þetta mál sem einkamál meiri hlutans í Reykjavík. Sjúkraflug á Íslandi byggist á því að hægt sé að koma sjúklingum hratt og örugglega á Landspítalann þar sem öflugasta og sérhæfðasta sjúkrahúsþjónustan er til staðar í landinu. Fyrir fólk á Norðurlandi, Austurlandi, Vestfjörðum, í Vestmannaeyjum og víðar getur hver mínúta skipt máli. Þá skiptir gríðarlegu máli að hægt sé að lenda nálægt Landspítalanum og þeirri sérfræðiþjónustu sem þar er til staðar. Reykjavíkurflugvöllur gegnir þar lykilhlutverki, er lykilinnviður.

Tölurnar sýna líka hversu mikilvæg þessi þjónusta er orðin. Í fyrra voru flogin 870 sjúkraflug með 923 sjúklinga. Það er gríðarleg aukning frá árinu 2002 þegar flugin voru um 200. Eftir að sjúkraflugið var tekið upp í þeirri mynd sem við þekkjum það í dag — þessi þróun sýnir að þörfin er raunveruleg og vaxandi. Það er því ábyrgðarhluti að tala um að þrengja að starfsemi Reykjavíkurflugvallar án þess að tryggja að jafn góður eða betri kostur taki við og sé til staðar. Slík ákvörðun snýst ekki aðeins um flugvélar og flugbrautir. Hún snýst um jafnan rétt landsmanna til heilbrigðisþjónustu og öryggi þegar mest á reynir.

Virðulegur forseti. Ég tel að við eigum að standa vörð um Reykjavíkurflugvöll sem mikilvægan hlekk í sjúkraflugi landsins, mikilvægan öryggisinnvið. Það er ekki sérhagsmunamál heldur mál sem snýr að almannahagsmunum, frú forseti, hreint þjóðaröryggismál.