fyrirkomulag óundirbúinna fyrirspurna.
Frú forseti. Bara örsnöggt því hér hefur verið tekinn upp aftur liðurinn óundirbúnar stoðsendingar sem er sjötta fyrirspurnin í fyrirspurnatíma eins og viðhafður er tvisvar í viku. Þetta hefur auðvitað oft verið viðhaft, að stjórnarflokkar eigi eina fyrirspurn annan hvern fyrirspurnadaginn, en mig langar til að hvetja virðulega þingmenn stjórnarflokkanna til að alla vega þykjast sinna einhverju aðhaldi gagnvart ráðherrum sem hér fá þessar stöku spurningar. Meginhlutverk fyrirspurnatíma, sem er kallaður óundirbúinn, er auðvitað aðhaldshlutverkið gagnvart ráðherrum hvers tíma. Það er bara gaman að því að þessi liður sé kominn inn aftur en ég hvet þingmenn til að vera gagnrýnir í spurningum sínum en vera ekki með óundirbúnar stoðsendingar sem ráðherrar mæta svo með skrifuð svör við. Það er ekkert gaman að því.