vinnubrögð í meðferð mála.
Virðulegi forseti. Ég ætla að taka undir öll þau orð sem hér hafa fallið um það að við þurfum að vanda til verka þegar við vinnum hér á Alþingi. Og ég ætla að fá að segja það að mér hefur fundist formaður utanríkismálanefndar, hv. þm. Pawel Bartoszek, hafa haldið alveg sérlega vel á þessu máli. Það hefur alveg verið vitað mjög lengi að það yrði ágreiningur um þetta mál. Það er ekkert nýtt í því að það sé ágreiningur um gestakomur, úttektir og annað hér í þessu húsi. Það er svolítið skrýtið að maður þurfi að vera að minna oft á það. Ég er ekki með jafn mikla þingreynslu og hv. þm. Guðlaugur Þór Þórðarson en ég var í stjórnarandstöðu á síðasta kjörtímabili og það var oft ágreiningur um þessa hluti þá líka. Það er einhvern veginn þannig sem lýðræðið virkar. Auðvitað er það líka þannig að það er heldur engin nýlunda að þingmenn hafi aðgang að trúnaðargögnum sem eru þá inni í einhverju lokuðu herbergi. Það gerðist líka á síðasta kjörtímabili, svo við nefnum það. Þingmenn hafa aðgang að þeim og geta kynnt sér þau, en sum þeirra eru þess eðlis að þau varða milliríkjasamskipti og annað (Forseti hringir.) og það er kannski flókið að birta þau opinberlega. Það er auðveldasti hlutur í heimi að kalla það einhverja sérstaka leyndarhyggju. Þá verða menn bara að gera það. (Forseti hringir.) En mér hefur fundist hv. þm. Pawel Bartoszek, formaður utanríkismálanefndar, gera mikið í því að halda nefndinni upplýstri og vísa því algerlega á bug að hans vinnubrögð í þessu máli séu eitthvað óeðlileg.