þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þm. Sigurði Inga Jóhannssyni fyrir ágætisnefndarálit 1. minni hluta. Þó að ég sé alls ekki sammála þeirri nálgun sem þar er að finna að öllu leyti er hér a.m.k. á einum stað í álitinu bent á mikilvægan vinkil í lýðræðislegri umræðu sem mér finnst við alveg mega lyfta hærra. Ég vitna til fjórðu blaðsíðu álitsins, með leyfi forseta, þar er ávarpað mikilvægi þess að upplýsingaóreiða færist ekki í vöxt hér á landi og aukist, sérstaklega ekki í tengslum við stóra lýðræðislega kosningu sem þjóðaratkvæðagreiðslan er. Þar segir, með leyfi forseta:
„Í mörgum nágrannaríkjum okkar hefur því verið sett löggjöf til að takmarka m.a. óeðlileg inngrip erlendra aðila, öflugra innlendra hagsmunaaðila eða fjársterkra aðila.“
Forseti. Mér finnst mjög viðeigandi, svo ekki sé meira sagt, að þessi ábending komi frá fyrrverandi innviðaráðherra sem bar ábyrgð á netöryggismálum á árunum 2021–2024. Árið 2024 tók einmitt gildi í Evrópusambandinu reglugerð um stafræna þjónustu, þ.e. DSA. Mig langar til að halda því fram, og ég geri það skammlaust, að þetta réttaröryggi búa nágrannaríki okkar í Evrópusambandinu við, ekki við. Það þarf að taka þessa gerð sérstaklega upp í EES-samninginn. Það hefur ekki enn þá verið gert. Hvernig bar hv. þingmaður sig að til að tryggja þetta réttaröryggi í sinni ráðherratíð? Telur hann líklegt að á næstu misserum hreinlega búi Íslendingar við sama réttaröryggi að þessu leyti og nágrannar okkar sem búa við þennan rétt innan Evrópusambandsins? Er þetta boðlegt?