157. löggjafarþing — 107. fundur,  20. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[20:16]
Horfa

Frsm. 3. minni hluta utanrmn. (Diljá Mist Einarsdóttir) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Hann fór ágætlega yfir það að fyrir liggur samskiptayfirlit sem telur yfir 50 fundi þar sem m.a. er rædd aðild Íslands að Evrópusambandinu. Við fáum aðeins samskiptayfirlit með uppdiktuðum fyrirsögnum úr utanríkisráðuneytinu þannig að maður veltir því nú fyrir sér hvað hefur farið fram á þessum fundum sem mátti bara skoða í lokuðu leyniherbergi og hvernig fyrirsagnirnar hefðu verið ef þær hefðu ekki verið skrifaðar fyrir hv. utanríkismálanefnd. Hvers má vænta? Ég hef af því þungar áhyggjur og lagði upp með það í ræðu minni að fólk ætti að velta því vel og vandlega fyrir sér hvort það treysti hæstv. utanríkisráðherra sem gengur fram með þessum hætti, sem hreinlega leynir upplýsingum eins og hún varð uppvís að varðandi fundinn með stækkunarstjóranum, sem viðhefur ekki lögbundið samráð við utanríkismálanefnd, ekki lögbundið samráð við almenning og hagsmunaaðila í aðdraganda þess að þingmál eru lögð fram o.s.frv. (Forseti hringir.) Ég hef af því þungar áhyggjur að í þessu birtist algjört virðingarleysi (Forseti hringir.) hæstv. utanríkisráðherra fyrir gagnsæju ferli og fyrir því umboði sem henni er veitt.

(Forseti (EÁs): Forseti vill taka fram við hv. þingmenn að ræðutími er ein mínúta í þessum andsvörum.)