157. löggjafarþing — 107. fundur,  20. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[20:17]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta utanrmn. (Sigmundur Davíð Gunnlaugsson) (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég deili þessum áhyggjum og við hljótum að velta því fyrir okkur hvað í fundargerðum eða nánari skýringum á því hvað var rætt þarna er svo viðkvæmt að það megi ekki fjalla um það. En ég spyr hv. þingmann: Telur hv. þingmaður einhverjar líkur á því að á þessum mörgu fundum um aðildarferlið að Evrópusambandinu hafi hæstv. utanríkisráðherra útskýrt fyrir fulltrúum Evrópusambandsins að stjórnvöld á Íslandi séu áhugasöm um að sækja um aðild að ESB, ekki endilega til að ganga í Evrópusambandið heldur bara svona til þess að sjá hvað Evrópusambandið býður okkur? Eru einhverjar líkur á því að hæstv. ráðherra hafi nálgast málið með þeim hætti gagnvart fulltrúum ESB eða eru mun meiri líkur á því að hæstv. ráðherra hafi verið að segja eitt í Brussel og annað á Íslandi?