157. löggjafarþing — 107. fundur,  20. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[20:19]
Horfa

Frsm. 3. minni hluta utanrmn. (Diljá Mist Einarsdóttir) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir gott síðara andsvar. Ég verð að segja að ég hef þekkt hæstv. utanríkisráðherra lengi og ég hef sjálf aldrei heyrt hana tala með þessum hætti fyrr en bara það fór að henta þessum málstað. Þetta er auðvitað forystumaður í íslenskum stjórnmálum sem hefur talað fyrir inngöngu Íslands í Evrópusambandið árum og áratugum saman og einnig samflokksmenn hennar þannig að líkurnar til þess — nú eru þetta auðvitað bara getgátur, við gátum ekki og þjóðin gat ekki fengið að vita um innihald samskiptanna við ESB — að hæstv. utanríkisráðherra hafi farið og átt yfir 50 fundi með forsvarsmönnum Evrópusambandsins og rætt við þá um að það stæði ekki til að ganga í Evrópusambandið heldur aðeins svona að kanna stöðuna, kanna stemmninguna, eru auðvitað engar. Líkurnar til þess að þeir í Evrópusambandinu iði núna í skinninu og það glansi í þeim augun yfir tilhugsuninni um að láta Ísland aftur hafa milljarða á milljarða ofan til þess að það gangi kannski mögulega einhvern tímann í Evrópusambandið eru auðvitað engar, enda grínaðist ég með það í hv. utanríkismálanefnd að við ættum þá auðvitað bara að gera þetta árlega, fara í viðræður við Evrópusambandið og þiggja af því peninga sem við gætum notað í alls konar.