157. löggjafarþing — 107. fundur,  20. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[20:21]
Horfa

Frsm. 3. minni hluta utanrmn. (Diljá Mist Einarsdóttir) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið og gott að hún gleðst yfir efnislegri umræðu. Við hlupum bara svo hratt í hv. utanríkismálanefnd að við höfðum auðvitað engan tíma fyrir efnislega umræðu þannig að ég gleðst sömuleiðis og hlakka til efnislegrar umræðu hér á þingi.

Ég skildi ekki alveg spurningu hv. þingmanns varðandi vinnu í sátt innan nefndarinnar, hvort hún hafi verið að tala um fyrri vinnuna eða vinnuna núna, en hún getur kannski skýrt það betur í næsta svari. En hvers vegna kaus sú sem hér stendur að skoða ekki leynigögn inni í leyniherberginu frá utanríkisráðuneytinu? Mér finnst það vera augljóst og hv. þm. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson kom ágætlega inn á það áðan að auðvitað er augljós tilgangur sá að múlbinda hv. þingmenn með þessum hætti. Í hinn stað langar mig að segja um tilgang þessa máls, sem er mjög einstakt, við erum að vinna þetta mál, fullvinna þetta mál til þess að afhenda það íslensku þjóðinni: Hvaða tilgangi þjónar það þá fyrir hv. þingmenn að fara inn í leyniherbergi til að skoða gögn sem má síðan ekki vinna frekar með, má ekki vísa til og má ekki greina frá? Það þjónar auðvitað ekki markmiðum þess sem við erum að vinna hér í nákvæmlega þessu máli. Það segir sig algjörlega sjálft.