157. löggjafarþing — 108. fundur,  21. maí 2026.

opinber stuðningur við vísindi og nýsköpun.

320. mál
[11:21]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Við greiðum hér atkvæði um breytingar á opinberum stuðningi við vísindi og nýsköpun. Með þessu frumvarpi er verið að taka til í stuðningsumhverfinu. Ég styð þetta mál. Þetta er gott. Ég veit að þessi vinna hófst í tíð fyrrverandi ráðherra, Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur, en ég get ekki látið hjá líða, þegar við ræðum um svona mikilvægan málaflokk eins og nýsköpun, að benda á þá staðreynd að nýsköpunarfyrirtæki hér úti segja að það hafi orðið algjör viðsnúningur eftir að þessi ríkisstjórn tók við. Umsóknir um endurgreiðslu vegna rannsókna og þróunar frá Rannís eru bara stopp og fjöldi fyrirtækja sem hingað til hafa fengið þessa endurgreiðslu er að fá synjun eftir synjun eftir synjun.

Virðulegur forseti. Ríki sem sofna á verðinum varðandi nýsköpunarmál dragast hratt aftur úr. Þannig að, virðulegur forseti, ég ætla að biðja hæstv. ríkisstjórn að sofna af þessum svefni. Við þurfum á öflugu nýsköpunarumhverfi (Forseti hringir.) að halda og öflugum nýsköpunarfyrirtækjum. Til þess þarf Rannís að vera virkt og við verðum að nota þær góðu aðferðir sem hafa nýst okkur á síðustu árum.