opinber stuðningur við vísindi og nýsköpun.
Virðulegur forseti. Það er staðreynd að á Íslandi hefur nýsköpun verið gríðarlega öflug á síðustu árum. Við höfum í vaxandi mæli verið að færa fjármuni inn í stærri samkeppnissjóði, sinnt faglegri vinnu, komið til móts við kröfur þeirra sem stunda nýsköpun til að efla hana og það hefur gengið vel. Á þessu er þó einn galli, á öllu þessu, að nýsköpun úti á landi, á landsbyggðinni, hjá smærri aðilum, hefur farið halloka í þessu stóra kerfi. Þess vegna er það mjög jákvætt að meiri hlutinn hafi hlustað á þau rök sem komu m.a. frá Byggðastofnun, Háskólafélagi Suðurlands og fleiri aðilum um að Lóa, sem áður hefur verið sérstakur verkefnasjóður úti á landi, eigi að halda áfram. Það er mjög mikilvægt. En ég vil líka beina því til stærri sjóða að horfa meira til fleiri atvinnugreina og til landsins alls þegar kemur að úthlutun. En við í Framsókn munum styðja þetta mál.