opinber stuðningur við vísindi og nýsköpun.
menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra (Logi Einarsson) (Sf) (um atkvæðagreiðslu):
Virðulegur forseti. Hér er um gott mál að ræða sem lýtur að því að auka, bæta og skýra yfirsýn yfir sjóðakerfið á Íslandi. Það er m.a. verið að gera breytingar sem gera það að verkum að fyrirtæki í nýsköpun úti á landi, sem hv. þm. Sigurður Ingi Jóhannsson talaði um, eiga meiri möguleika vegna þess að nýsköpun þar er að einhverju leyti oft annars konar heldur en hér á höfuðborgarsvæðinu. Það er rétt sem kom fram í máli hv. þm. Bryndísar Haraldsdóttur að það hafa verið hnökrar á afgreiðslum Rannís á endurgreiðslum úr R&Þ. Að sumu leyti eru þeir vegna breytinga sem voru gerðar í tíð fyrrverandi fjármálaráðherra í síðustu ríkisstjórn og við erum nú búin að vera að vinna markvisst að því að vinda ofan af því. Það er þó þannig að stuðningur við nýsköpun á Íslandi (Forseti hringir.) mælist næsthæstur allra ríkja í Evrópu og það eru engin áform um annað hjá þessari ríkisstjórn en að við verðum þar áfram. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)