157. löggjafarþing — 108. fundur,  21. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[12:37]
Horfa

Pawel Bartoszek (V) (um fundarstjórn):

Virðulegur forseti. Ég barma mér ekki þegar hv. þingmaður ýjar að því að við sem viljum ganga í Evrópusambandið gerum það út af okkar eigin hagsmunum til að fá betri störf eða stöður, enda er auðvelt fyrir okkur að bera hönd fyrir höfuð okkar hér í salnum. Og út af þessari umræðu, sem er kannski engin ástæða til að fara efnislega í, þá er það vissulega þannig að ef við tökum gerðir eins og ríkisframlög til íþróttafélaga, sem var vísvitandi ákveðið að halda utan við EES-samninginn, þá er áfram hægt að ná fram þessum tölum. Það sem ég gerði athugasemdir við var að hv. þingmaður notaði þau orð að hér væri fólk, nafngreint fólk, að skrökva. Það var sem sagt vísvitandi farið með rangt mál til að blekkja og mér þykir þar vera vegið að æru og starfsheiðri fólks. Mér finnst leitt að hv. þingmaður hafi ekki komið hér upp í fundarstjórn til að biðjast afsökunar á þessum ummælum og draga þau til baka.

Ég spyr aftur forseta: Hyggst forseti gera athugasemdir við þennan málflutning eða ekki?