fjárlög 2027.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Guðlaugi Þór Þórðarsyni fyrir ræðuna. Hún var í alla staði athyglisverð. Lesi maður í gegnum fjárlagafrumvarpsframsöguræður fyrirrennara minna kemur í ljós að það er ákveðið stef þar sem kemur fram um skrefin í átt að hallalausum fjárlögum og raunar ítrekanir á mikilvægi þeirra: Að ná jákvæðum frumjöfnuði, ná afkomunni í plús, sem þessi fjárlög gera, og ná lánsfjárjöfnuði jákvæðum. Þetta er röðin sem þessar ákvarðanir eru teknar í. Mér leikur því forvitni á að vita, í ljósi þess að verið er að fara nákvæmlega áfram eftir þessu handriti, hvað hv. þingmaður hefur fyrir sér þegar hann heldur því fram að ríkisstjórnin hafi gefist upp á verkefninu.