fjárlög 2027.
Frú forseti. Við í Flokki fólksins erum afar sátt við það fjárlagafrumvarp sem er hér til umræðu. Ég hlakka til þeirrar vinnu sem er fram undan við yfirferð á því, eins og ég vænti áfram góðrar samvinnu við stjórnarandstöðuna við að gera gott frumvarp að enn betri fjárlögum fyrir næsta ár. Hér er um að ræða fjárhagsramma yfir sameiginlegan rekstur sem mikilvægt er að skapa sem breiðasta sátt um. Allar tillögur, hvaðan sem þær koma, eru vel þegnar; að fá hvar þurfi að bæta í en ekki síður hvar sé hægt að spara og ná jafnvel í enn frekari tekjur.
Staðan á Íslandi er um margt ákjósanleg. Allar helstu sjávarafurðir, sem eru um 40% af vöruútflutningi þjóðarinnar, seljast á afar háu verði. Það sama á við um afurðir stóriðjunnar. Eldið fer vaxandi og ferðamenn streyma til landsins. Að auki bendir allt til þess að hægt sé að auka gjaldeyristekjur gríðarlega af sjávarútvegi með auknum veiðum og gagnsærri verðmyndun, en ég fer meira yfir það síðar í ræðunni. Það sem skyggir á stöðuna er að frá árinu 2019 er uppsafnaður halli á ríkissjóði á níunda hundrað milljarða króna. Þetta er gríðarlega há fjárhæð. Í ljósi góðrar stöðu væri ekki réttlætanlegt fyrir ábyrg stjórnvöld og þingheim allan að hunsa stöðuna. Við hljótum að gera atlögu að því að stöðva hallarekstur sem leiðir að öðrum kosti til enn meiri skulda og aukins vaxtakostnaðar ríkisins.
Hvert einasta mannsbarn á Íslandi þekkir kostnaðinn af því að skulda. Vaxtakostnaður ríkisins er nú um 148 milljarðar kr. á ári. Ríkið greiðir því á hverjum og einum einasta degi liðlega 400 millj. kr. í vexti. Það fæst ýmislegt fyrir 148 milljarða kr.; til að mynda myndi upphæðin duga fyrir þremur Fjarðarheiðargöngum. Vaxtagreiðslur ríkisins í tíu daga dygðu fyrir öllum útgjöldum sveitarfélagsins Fjallabyggðar, þ.e. Ólafsfjarðar og Siglufjarðar, þar með töldum kostnaði við rekstur hafnarinnar, skóla, leikskóla, yfirstjórnar, áhaldahúss og veitna, svo eitthvað sé talið upp. Framangreindir þættir ættu að verða til þess að þingmenn, allir sem einn, sameinuðust um að stöðva frekari skuldasöfnun. Það eru veigamikil rök fyrir því að stöðvun hallarekstur ríkissjóðs myndi leiða til bættra vaxtakjara sem aftur myndi létta róðurinn hjá ríki og þorra almennings með lægri vöxtum.
Deilurnar um fjárlögin ættu því að hverfast um hvaða leiðir þingmenn vilja fara til þess að ná þessu markmiði. Við þingmenn Flokks fólksins erum ánægðastir með að samhliða rekstrarlegri ábyrgð sé gert betur við þá sem búa við hvað kröppustu kjörin í þjóðfélaginu. Í frumvarpinu er gert ráð fyrir því að bætur almannatrygginga, þ.e. elli- og örorkulífeyrisþegar, og bætur samkvæmt lögum um félagslega aðstoð hækki um 7,3% frá 1. janúar 2027 í samræmi við launaþróun á liðnum árum. Það er í samræmi við lög sem samþykkt voru á síðasta þingi og við erum auðvitað afar sátt við það. Áfram er gefið í hvað varðar uppbyggingu hjúkrunarheimila, sem er vel. Það er ekki sanngjarnt að líta á þessa uppbyggingu sem beinan kostnað. Beinn sparnaður hlýst af uppbyggingu hjúkrunarheimila og rekstri sjúkrahúsa fyrir utan bætt lífsgæði eldri borgara sem ekki er hægt að líta fram hjá.
En þá að raunhæfum möguleikum til að auka útflutningstekjur sjávarútvegsins. Með fullri virðingu fyrir þingmönnum stjórnarandstöðunnar er holur tónn í ræðu þeirra þegar kemur að umræðu um að auka útflutningstekjur úr helstu útflutningsafurð þjóðarinnar. Það snertir einhverja kviku hjá mörgum ef rætt er um að tryggja gagnsæja verðmyndun þannig að þeir sem geta greitt hæsta verðið fyrir fiskinn fái hann til vinnslu úr sameiginlegri auðlind þjóðarinnar. Í Færeyjum eru til að mynda reglur sem kveða á um að hvert og eitt skip er skyldugt til að setja 30% af botnfisksafla á markað. Þannig er hægt að samhæfa vinnslu og útgerð með sanngjarnari verðlagningu. Við þurfum að líta til þess. Það blasir jafnframt við að hægt væri að stuðla að auknum virðisauka þjóðarinnar með frekari vinnslu sjávarafurða. Það er nauðsynlegt að við reynum að koma því í kring í auknum mæli þannig að fiskurinn sé ekki fluttur til vinnslu erlendis í gámum.
Ef notuð er sama veiðiregla og var í notkun fyrir tíu árum hefði síðasta loðnuvertíð skilað 100.000 tonnum meiri afla á land. Meðalvöxtur þorsks er nánast í öllum árgöngum undir meðaltali sem gefur til kynna að bæta megi verulega í veiðina. Nýlega var upplýst að stór hluti af veiðiheimildum í ufsa er ekki veiddur heldur notaður í einhverjar tegundatilfærslur og brask. Það má leiða líkur að því að þarna verði þjóðin af allt að 10 milljörðum kr. í beinhörðum gjaldeyri. Því er nauðsynlegt að breyta reglum þannig að menn hafi ekki hag af því að veiða ekki fiskinn og nota hann þess vegna í tegundatilfærslu eða eitthvað annað sem er algerlega þvert á hag þjóðarinnar.
Frú forseti. Fjárlagafrumvarpið boðar aðhald upp á 8 milljarða kr. með almennu aðhaldi og fækkun starfa hjá ríkinu um 1%. Það ætti að vera gerlegt þar sem nýjar tölur frá Byggðastofnun gefa til kynna að ríkisstjórnir fyrri ára hafi fjölgað ríkisstarfsmönnum um 25% á einum áratug. Auk þess ættu tækninýjungar og gervigreind að gefa aukið rými til framleiðniaukningar starfsfólks. Hér mun reyna á útsjónarsemi ráðamanna og forstöðumanna stofnana í að fara vel með skattfé almennings. Nú þegar búið er að sameina stofnanir, m.a. sýslumenn og verið er að stofna Stofnun atvinnuveganna, þá er rétt að horfa til ýmissa þátta. Það er mikilvægt að yfirstjórn stórra stofnana líti ekki aðeins til sparnaðar á útstöðvum og störfum þeirra sem eru í beinum tengslum við notendur; ekki síður verði að horfa til sparnaðar í yfirstjórn og stoðdeildum stofnana.
Frumvarpið gerir einnig ráð fyrir að sumum framkvæmdum verði frestað. Það gefur stjórnvöldum í sumum tilfellum tóm til að endurskoða fyrri áætlanir, m.a. fjárframlög til byggingar fangelsis. Aðrar boðaðar tekjuráðstafanir til að stoppa í fjárlagagatið eru hóflegar og vel ígrundaðar. Hækkun kílómetragjalds um rúma krónu á hvern kílómetra er í samræmi við fjármálaáætlun og markmið stjórnvalda um að gjaldið skili ríkissjóði því sem svarar til 1,7% af þjóðarframleiðslu. Þetta er til að efla uppbyggingu innviða landsins og ná tekjum í samræmi við upphaflegt markmið, þ.e. að tekjur verði svipaðar og á árinu 2017. Hækkun bankaskatts er sanngirnismál. Það er vert að hafa í huga að þegar skatturinn var lækkaður hér um árið skilaði sú lækkun sér ekki til neytenda og því er ekki við að búast að hækkunin skelli á neytendum alfarið ef litið er til sögunnar.
Það er mikilvægt fyrir allan þorra almennings að við náum endum saman í þessu frumvarpi og að fjárlögunum verði skilað með afgangi. Það dregur úr lánsfjárþörf ríkisins og eftirspurn eftir fjármagni og ætti því að leiða til lægri vaxta og minni verðbólguvæntinga.
Ég tel rétt að minnast örlítið hér í lokin á verðbólguvæntingar. Það er ákveðin ábyrgð sem hvílir á okkur þingmönnum þegar við erum að ræða hér um þetta frumvarp, að það sé ekki spilað á að það sé í rauninni allt að fara til fjandans. Eins og ég nefndi í ræðu minni í upphafi eru skilyrði þjóðarbúsins góð. Hlutirnir eru virkilega jákvæðir. Við erum að fá góð verð fyrir helstu útflutningsvörur samfélagsins. Við erum hér með ferðamenn og hér er í rauninni allt í blóma. Það er ekkert sem segir annað en að stjórnmálamenn, sem ætla að vera ábyrgir í störfum sínum, eigi að nota góðærið sem núna ríkir til þess að greiða upp skuldir sem var safnað á fyrri árum til þess að ná vöxtum niður og hagsæld í samfélaginu til frambúðar.