158. löggjafarþing — 3. fundur,  10. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[14:46]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M) (andsvar):

Frú forseti. Það kann að vera að sumum þyki allt í lagi að hækka skatta á fólk og fyrirtæki. En þessi ríkisstjórn gengur allt of langt í þeim efnum og sérstaklega eftir að hafa lofað að hækka ekki skatta. Hvað gerir hún? Hún fer í eitthvað sem hún telur til vinsælda fallið af því að fyrirtækin eru óvinsæl. Það voru veiðigjöldin í fyrra og nú eru það bankarnir. Mig langaði því að spyrja, af því að hv. þingmaður sagði að það væri nóg til hjá bönkunum: Hvað telur hv. þingmaður að sé eðlilegur hagnaður bankanna? Hún verður, frú forseti, að setja þessar tölur í eitthvert samhengi. Það er ekki hægt að tala bara um hagnað bankanna algjörlega samhengislaust. Ríkisstjórnin þarf að svara: Hvað er eðlilegur hagnaður? Þá er hægt að segja hversu mikinn skatt á að taka. Hvað telur hv. þingmaður að sé eðlilegur hagnaður bankanna?