158. löggjafarþing — 3. fundur,  10. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[19:25]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M):

Frú forseti. Nú fór hæstv. utanríkisráðherra vel yfir, í ræðu hér í þinginu fyrir nokkrum árum, þau áhrif sem bankaskattur hefur á heimili landsins og hæstv. ráðherra var skýr á sínum tíma: Hækkun á bankaskatti hefur slæm áhrif á heimili landsins. Því langar mig að spyrja: Hvað breyttist? Þetta er ekki eini skatturinn sem hæstv. ríkisstjórn hefur ákveðið að standa fyrir þrátt fyrir loforð Viðreisnar og annarra í þessari ríkisstjórn um að hækka ekki skatta. Því spyr ég hæstv. ráðherra, eins og ég spurði hæstv. forsætisráðherra áðan: Af hverju er verið að svíkja gefin loforð? Þið lofuðuð að hækka ekki skatta, þið eruð að hækka skatta. Spurningin er: Af hverju er verið að svíkja það loforð?

Svo langar mig einnig að spyrja í ljósi mjög misvísandi ummæla hæstv. utanríkisráðherra varðandi stöðu umsóknar Íslands að Evrópusambandinu: Hvernig lítur hæstv. ráðherra á stöðuna? Lítur hæstv. ráðherra svo á að umsóknin sé gild eða ekki?