158. löggjafarþing — 3. fundur,  10. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[20:04]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F):

Virðulegur forseti. Já, ég hlustaði af athygli á allar ræðurnar í gær og fannst þær misgóðar. Varðandi umræðu um hvernig maður virðir niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslu þá mun ég geta komið því frá mér á þremur til fjórum mínútum. Það tekur engan tíma frá fjárlögunum sem eru aðalatriði þessa hausts og hvernig við ætlum að takast á við efnahagsmálin og hvernig ríkisstjórnin er því miður að klúðra því máli, að ná niður verðbólgu og vöxtum í þessu landi, með þeim afleiðingum að atvinnuleysi vex og hagvöxtur minnkar. Við erum að ég óttast að stefna í harða lendingu í efnahagsmálum, eitthvað sem við vorum búin að reyna að forðast mjög lengi. Ég hafði bara ekki tækifæri til þess að ræða það við hæstv. forsætisráðherra eða hæstv. fjármálaráðherra í dag. Það er ágætt að koma því hér á framfæri. Þannig að það er ekki vandamálið. En ég trúi því ekki að hæstv. utanríkisráðherra (Forseti hringir.) vilji hafa þá óvissu uppi eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna að komi til þess einhvern tímann í framtíðinni, að þá eigi að fara að byggja hugsanlega umsókn um aðild að Evrópusambandinu á vinnu sem fór fram árin 2009 og 2010 við allt aðrar aðstæður í íslensku samfélagi. (Forseti hringir.) Ég trúi því ekki.