158. löggjafarþing — 4. fundur,  11. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[11:22]
Horfa

menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra (Logi Einarsson) (Sf):

Virðulegur forseti. Ég held að það sé afar mikilvægt hvernig hv. þingmaður orðar þetta nákvæmlega, þetta samspil. Þetta er nefnilega jafnvægi milli frumsköpunar innan lands og erlendra verkefna. Við getum ekki alveg horft fram hjá því að stóru erlendu verkefnin hafa líka búið til svona innviði fyrir kvikmyndagerð í landinu: kvikmyndaver, mikið af tökuvélum, mikla þekkingu, skapað heilsársstörf og annað. En annað má ekki kæfa hitt og við munum alveg örugglega leitast við í þessari endurskoðun, sem við boðum bara strax eftir áramót, að svara því og njóta liðsinnis þingsins og geirans við það. Þetta er einstigi. Lögin eru 25, 26 ára gömul og margbætt og þannig flíkur eiga stundum bara að fara í einhverjar endurvinnsluverksmiðjur og nýjar þurfa að koma til.

Varðandi Kvikmyndasjóðinn er það líka mál sem ég deili áhyggjum af. Hann hefur staðið í stað. Hann stendur í stað núna að frádregnu tímabundnu fjármagni sem kom inn í hann í fyrra, 50 milljónum, einhverju svoleiðis. Hann þarf til framtíðar, held ég, að styrkja vegna þess að hann er það sem getur helst nýst á fyrstu skrefum fyrir þessa íslensku frumsköpun. Um það erum við hv. þingmaður og geirinn sammála, held ég, og það er verkefni sem við þurfum að vinna að saman. Á sínum tíma skilst mér að líka hafi verið gefið loforð um sérstakan sjónvarpssjóð fyrir þáttagerð og annað slíkt og það eru bara rosalega brýn verkefni sem við þurfum að taka á. En ég tek undir að sá sjóður þarf að stækka til framtíðar. Það gerist ekki á næsta ári. En ég vil gjarnan eiga samtal við greinina, fjármálaráðuneytið og aðra sem koma að þessu til að það geti gerst.