158. löggjafarþing — 4. fundur,  11. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[11:24]
Horfa

Snorri Másson (M):

Virðulegur forseti. Maður hefur ekki mikinn tíma hérna í síðustu spurningu til hæstv. ráðherra en ég vildi kannski, ef maður kemur orðum að því í stuttu máli, spyrja út í háskólana og fjármögnun þeirra. Þar var gerð sú breyting á lögum hér á síðasta þingi að til stendur að taka skólagjöld, eiginleg skólagjöld, af nemendum sem hingað koma utan EES. Það var töluverð umræða um það í þinginu með hvaða hætti það mætti hlífa greinum sem stjórnvöld hefðu áhuga á að hlífa við þessari breytingu en á línuna á þetta að ganga. Ég vil spyrja hæstv. ráðherra hvort hann hafi einhverjar upplýsingar um það með hvaða hætti þetta verður útfært á vegum háskólanna, hvort menn sjái þegar að umsóknum sé farið að fækka, vegna þess að þetta var auðvitað gert til að bregðast við ákveðinni misnotkun í kerfinu að mínu mati. Hvernig verður þetta og mun hljótast eitthvert fjármagn inn í háskólana fari menn að borga skólagjöld í stórum stíl eða koma menn út á núlli? Það er spurningin: Hvernig horfir þetta við ráðuneytinu, hæstv. menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra?