158. löggjafarþing — 4. fundur,  11. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[11:25]
Horfa

menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra (Logi Einarsson) (Sf):

Virðulegur forseti. Hvort háskólarnir muni koma út á núlli eða hvort það eykst eitthvað í þá, það verður bara að koma í ljós hver þróunin verður. Þetta er eðlilegt skref sem hin Norðurlöndin eru öll búin að stíga. Reynslan þar er að það fækkar mjög mikið fyrstu eitt, tvö, þrjú árin og síðan fjölgar aftur. Ef sú fjölgun skilar sér aftur hér eins og þar mun þetta færa skólunum auknar tekjur. Varðandi það hverjir munu ekki falla undir þessi lög, af því að nú eru það bara þjóðir innan EES plús Grænland og Færeyjar, þá verða það hópar sem standa viðkvæmir fyrir. Það verða hópar sem hér hafa nú þegar dvalarleyfi. Það verða örugglega hópar sem tengjast með einhverjum hætti þróunarsamvinnu Íslands. Það verða örugglega hópar sem við viljum fá hingað, afburðanemendur í doktorsnámi og öðru slíku. En við munum líka gefa skólunum að einhverju leyti frelsi með því að búa til einhvers konar pott og kvóta fyrir þá þannig að þeir geti valið sér sína nemendur sem verða undanþegnir þessu og það verður útfært núna á næstu dögum og vikum.