158. löggjafarþing — 4. fundur,  11. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[11:27]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F):

Frú forseti. Efling háskólans og aðhald. Það hafa auðvitað verið einhverjar tilfærslur á milli málaflokka eins og gefur að skilja við gerð fjárlaga, en það kemur fram að háskólarnir fái 1.343 millj. kr. aukið framlag til eflingar, að mér skilst. Á sama tíma nemur aðhaldskrafa málaflokksins 1.351 millj. kr. Hver er nettóefling háskólanna eftir að tekið hefur verið tillit til aðhaldsins? Hvað fá háskólarnir í raun til nýrrar starfsemi og eflingar?