158. löggjafarþing — 4. fundur,  11. sept. 2026.

fjárlög 2027.

1. mál
[11:28]
Horfa

menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra (Logi Einarsson) (Sf):

Virðulegur forseti. Það er hárrétt sem hv. þingmaður sagði, að munurinn á þessum fjármunum sem koma inn í háskólana og því sem þeim er gert að sýna aðhald er ekki upp á margar krónur. En þá skulum við muna það bara almennt í ríkisrekstri og rekstri sveitarfélaga, af því að ég veit að hv. þingmaður hefur líka starfað á þeim vettvangi, að aðhald getur líka bara skipt töluverðu máli til að halda stofnunum og fyrirtækjum á tánum þannig að þau séu alltaf að leita allra leiða til að gera hlutina með skilvirkari hætti. Háskólarnir hér munu auðvitað lúta sömu kröfu um aðhald og flestir aðrir og ég treysti þeim ágætlega til þess.

Ég vil þó fullyrða að í þessum fjárlögum, miðað við metnaðarfull áform um að skila hallalausum fjárlögum, hafa háskólarnir verið nokkuð vel varðir og ég myndi segja að þetta væri ákveðinn varnarsigur fyrir þá. Við höfum líka í ráðuneytinu okkar ýmis verkfæri og í undirbúningi eru ýmsar aðgerðir til að styðja ákveðna hluti háskólans sem við viljum sjá styrkjast og það má ekki gleyma því að háskólinn er búinn til fyrir samfélagið en ekki öfugt. Ég held að rektorarnir og þeir sem starfa innan háskólanna skilji þetta og ég held að við munum taka þetta verkefni alvarlega og sinna því af metnaði. Það er auðvitað alltaf hægt að gera hluti aðeins betur í dag en í gær. Þessir nýju fjármunir sem koma inn að því gefnu að þeir sjái sóknarfæri í að sýna þetta aðhald bæta þá stöðu þeirra.