breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027.
Virðulegur forseti. Þingmaðurinn fór hér mikinn áðan í ræðu sinni og er varla hálfnuð, ef ég skildi hana rétt. Mig langaði aðeins að fá að bregðast við hennar ræðu. Það væri áhugavert að heyra hvaða stöðu hún ætlar að taka sér, hvort hún ætlar að taka stöðu með almenningi í þessu landi eða hvort hún ætlar að taka stöðu með fjármálafyrirtækjum. Það væri áhugavert að heyra það. En mig langar aðeins að ræða við hana um það sem hún eyddi kannski mestum tíma sínum í, þ.e. ríkisútgjöldin, sem hún telur að séu að aukast allt of mikið og að það sé ekki verið að taka nógu vel á hlutunum. En ríkisútgjöld eru að dragast saman um 1,1% samkvæmt þessum fjárlögum þannig að það væri ágætt ef hún myndi kannski fara aðeins betur ofan í það.
En mig langaði aðeins að taka upp við hana, af því að ég gat ekki annað heyrt en að það megi hvergi sækja tekjur. Það má bara hagræða og draga saman ríkisvaldið. Það má hvergi taka tekjur, ef ég skil hana rétt. Það má bara draga saman. En mig langar líka að nefna við hana: Er ekki allt öðruvísi að reka ríkissjóð sem er að reka hér samfélag en að reka fyrirtæki? Er ekki stór munur þar á?