158. löggjafarþing — 5. fundur,  14. sept. 2026.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027.

2. mál
[19:08]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að koma hér í andsvar. Ég met það mikils að eiga hér samtal við fulltrúa frá ríkisstjórnarflokkunum. Ég nefndi þetta varðandi bankaskattinn og ég nefndi sérstaklega að hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra brást þannig við þegar hann fékk fyrirspurn frá fréttamönnum um þetta, hvort búast mætti við því að hækkun bankaskatts myndi leiða af sér hækkun gjalda hjá bönkum. Ég held að ég hafi tekið alveg rétt eftir, að hæstv. ráðherra viðurkenndi að það mætti alltaf búast við því. Hér eru orðin fræg ummæli formanns Viðreisnar sem hélt hér ræðu um bankaskatt og fjallaði nákvæmlega um að það mætti búast við því að hann færi út í verðlagið. Ég held að það sé bara hagfræðilega sannað að það má búast við því að svo sé.

Hv. þingmaður kemur inn á það að síðasta tilraun hafi ekki skilað árangri, þ.e. að lækkunin hafi ekki skilað sér til neytenda. Ég skal viðurkenna það að ég er ekki búin að lúslesa þessa skýrslu en það kemur fram í fréttinni á Stjórnarráðssíðunni, eins og ég segi, og það er hægt að draga þá ályktun að þessi lækkun bankaskattsins hafi ekki skilað sér í minni vaxtamun. En ég er líka búin að lesa greinar frá Samtökum fyrirtækja í fjármálaþjónustu sem fara yfir hvaða áhrif þetta hafði. Það varð vissulega lækkun á gjöldum hjá bönkunum eftir lækkun bankaskattsins. Við sáum það á verðskrá bankanna, þau lækkuðu. Ég ætla ekki að vera einhver dómari í því hver áhrifin nákvæmlega voru. Ég bara beini því til hv. þingmanns og nefndarinnar sem hún fer fyrir að þau skoði þetta vel því það virðast vera svolítið skiptar skoðanir. Og eins og ég veit að hv. þingmaður varð vör við í morgun á fundinum, þar sem var farið yfir þetta, þá ber alls ekki öllum saman um að það sé hægt að fullyrða að lækkun bankaskatts hafi ekki skilað sér til viðskiptavina og það eru vissulega dæmi um það. Þannig að ég bara hvet hv. þingmann og nefndina til að fara vel ofan í þau gögn.