Evrópska efnahagssvæðið.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Guðrúnu Hafsteinsdóttur fyrir svörin. Hún trúir því að nefndin taki vel utan um þetta mál. Ég ætla bara að vona að nefndin taki vel utan um þetta mál og skoði það frá öllum sjónarhornum. Mig langar í mínu seinna andsvari að spyrja aðeins út í ESA og hvað það hefur tekið ESA langan tíma að koma upp á yfirborðið með hvað það er ósátt við hvernig Ísland hefur innleitt bókun 35. Ég vil nefna orðið tómlæti. Telur þingmaðurinn að tómlæti gæti verið hluti af málsvörn Íslands vegna þess að það hafa ekki verið nein vandamál í hátt í 30 ár? Árið 2017 gerist eitthvað, (Forseti hringir.) haldið uppi vörnum, árið 2021 kemur nýr utanríkisráðherra og varnir felldar niður en fram að þessum tíma hefur ESA bara verið með tómlæti. (Forseti hringir.) Er þingmaðurinn sammála mér í því að þetta sé hlutur sem hægt væri að byggja m.a. málsvörn Íslands á?