158. löggjafarþing — 15. fundur,  8. okt. 2026.

gjaldtaka af erlendum ferðamönnum.

[14:13]
Horfa

atvinnuvegaráðherra (Hanna Katrín Friðriksson) (V):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina og þetta er auðvitað gríðarlega áhugavert mál. Staðreyndin er sú, svo að ég hafi aðeins formála að því, að stjórnvöld, hverra flokka sem þau hafa verið skipuð, um árabil hafa verið að leita leiða til að tryggja að hér ráðum við við það að byggja upp innviði, vernda náttúruna okkar, til þess að geta byggt hér upp sjálfbæra, öfluga ferðaþjónustu áfram. Álögur á skattgreiðendur hér við uppbyggingu þeirra innviða sem þörf hefur verið á að efla vegna ferðaþjónustunnar hafa verið gríðarlegar og fordæmalitlar þegar litið er til hlutfalls þeirra sem hér lifa, búa, starfa og greiða skatt og þeirra sem hingað koma. Þess vegna var farin sú leið, í ljósi þess að íslenskir skattgreiðendur eða þeir sem greiða skatt hér á landi borga þegar sinn hlut í uppbyggingu innviða, að skoða hvort ekki væri fordæmi fyrir því að fara þessa leið við gjaldtöku af náttúruinnviðum. og það er innan landa Evrópusambandsins. Ég nefni Króatíu, Ítalíu og Spán. Við erum að fara þessa leið. Við höfum fengið lögfræðiálit þar sem þessi mál hafa verið skoðuð. Í ljósi þess þá er það, þegar litið er til markmiða þessarar gjaldtöku og meðalhófs EES-réttar, að ótakmörkuð skattskylda sé hlutlægt og málefnalegt viðmið og það réttlæti þessa aðgreiningu sem við erum hér að leggja í. Við höfum lagt við undirbúning frumvarpsins sérstakt mat á samræmi við EES-samninginn, fengið lögfræðiálit þar að lútandi, og það er mat okkar að þetta fyrirkomulag, ekki síst þegar við leitum til þeirra dæma sem fyrir eru, gildi. Undir þessu liggur alltaf hið pólitíska mat. Það er eðlilegt að okkar erlendu gestir sem hingað koma eigi rétt á að gjald sem þeir greiða sé notað í uppbyggingu innviða. Við viljum búa svo um hnútana að þeir borgi það og að það séu ekki eingöngu skattgreiðendur hér á landi sem beri þann kostnað.