01.04.1909
Efri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 653 í B-deild Alþingistíðinda. (440)

31. mál, hagfræðisskýrslur

Ágúst Flygenring:

Af því eg hefi heyrt, að sumir vilji vísa máli þessu til verzlunarbókanefndarinnar, og af því eg á sæti í þeirri nefnd, vildi eg leyfa mér að lýsa því yfir, að eg vildi helzt vera laus við þetta mál. Stefnan er góð, en lögin eru óframkvæmanleg; frv. er líkast harmoníku, sem má draga út og inn. Helst vildi eg því fella frumv. nú þegar, en ef það verður ekki gert, þá skipa sérstaka nefnd.