30.04.1909
Efri deild: -1. fundur, 21. löggjafarþing.
Sjá dálk 785 í B-deild Alþingistíðinda. (631)

50. mál, kirknafé

Stefán Stefánsson (6. kgk. þm.):

Eg skal benda hinum háttv. þm. G.-K, á, að fordæmið er þegar gefið. Söfnuðurinn setti þetta skilyrði, og kirkjustjórnin hefir gengið að því. Annars þykir mér það hart, að hinn háttv. þm. skuli ekki vilja taka skýrslu mína trúanlega, þar sem það einmitt var eg, er fyrir safnaðarins hönd samdi við stjórnina um afhendingu kirkjunnar.