27.04.1911
Efri deild: -1. fundur, 22. löggjafarþing.
Sjá dálk 231 í B-deild Alþingistíðinda. (103)

111. mál, fjárlög 1912-1913

Steingr. Jónsson:

Eg vildi að eins taka það fram, að eg hefi aldrei sagt, að þeir væru ódýrir á Hvanneyri. Annars hefi eg ekki séð nema 2000 kr. til leikfimishússins þar, efri deild hefir að minsta kosti ekki haft um annað að fjalla. Það er langt frá því, að eg sjái nokkuð eftir því, að Hólaskóli fái það sem hann þarf. En það er hægt að veita svo mikið að mönnum þyki það rangt.