24.08.1912
Neðri deild: -1. fundur, 23. löggjafarþing.
Sjá dálk 970 í B-deild Alþingistíðinda. (1387)

94. mál, notkun lánsheimildar

Jón Ólafsson:

Herra forseti! Það er satt hjá hæstv. ráðherra (H. H.), að stjórnin þurfti ekki að taka alt lánið, sem heimildin hljóðar upp á. En úr því að lánið var tekið alveg eins og heimildin hljóðaði, þá var skylda að verja því öllu þannig sem heimildin tilgreinir.