11.09.1913
Efri deild: 52. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 1135 í B-deild Alþingistíðinda. (2397)

90. mál, hafnarlög fyrir Vestmannaeyjar

Jón Jónatansson, framsm.:

Það hafa ekki komið fram neinar breytingartillógur við þetta frumvarp. Það fjekk góðar viðtökur hjer í deildinni síðast, og þar sem hjer er um mikilsvert málefni að ræða, vona jeg það fái sömu undirtektir nú. Hef jeg svo ekki fleira að segja.