13.09.1913
Neðri deild: 59. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 2528 í C-deild Alþingistíðinda. (2690)

Fundalok

Lárus H. Bjarnason:

Við þakkarorð hv. forseta til deildarinnar vildi eg mega hnýta nokkrum þakkarorðum og árnaðaróskum þessarar deildar til forseta.

Vér þökkum forseta fyrir, hve alúðlega, samvizkusamlega og fast, en þó lipurlega, hann hefir stýrt fundum deildarinnar.

En jafnframt þökkinni viljum vér óska honum þess, að hann hitti nú vandamenn sina og vini heilbrigða og glaða.

Og loks fullvissa eg forseta um það, að honum fylgir velvild og virðing allra þeirra þingmanna, sem honum hafa kynst.

(Allir deildarmenn stóðu upp).