30.07.1915
Neðri deild: 20. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 886 í B-deild Alþingistíðinda. (1681)

41. mál, löggiltir vigtarmenn

Bjarni Jónsson :

Jeg vildi að eins gjöra þá fyrirspurn, hvort hv. nefnd myndi ekki vilja taka til greina brtt. um það, að vogarmenn (Hannes Hafstein: Vogamenn!) kæmu í staðinn fyrir vigtarmenn. Benda má 1. þm. Eyf. (H. H.) á, að fleira byrjar á vog en vogur, t. d. að voga sjer aðra eins fyndni og hann kom með.