07.09.1915
Neðri deild: 53. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 971 í B-deild Alþingistíðinda. (1811)

64. mál, aðflutningsbann á áfengi

Hannes Hafstein:

Jeg vil leyfa mjer að skjóta því til hæstv. forseta, hvort ekki mundi heppilegt, að taka málið út af dagskrá, því að brtt. þessar eru svo víðtækar, að ógjörningur virðist að átta sig á þeim í einni svipan.

Jeg veit, að þessi málaleitan er í samræmi við vilja fleiri þingmanna.