16.07.1915
Neðri deild: 8. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 1357 í B-deild Alþingistíðinda. (2117)

11. mál, verðtollur

Flutnm. (Bjarni Jónsson):

Jeg ætla, að jeg hafi getið þess áður, að jeg mundi flytja þetta frumvarp nú á þinginu. Jeg ætla mjer ekki að hefja neinar umræður um það nú. Tillaga mín er sú, að frumv. verði vísað til nefndar þeirrar, sem um tollmálin á að fjalla.