12.01.1917
Neðri deild: 23. fundur, 27. löggjafarþing.
Sjá dálk 27 í B-deild Alþingistíðinda. (54)

4. mál, Íslandsbanka leyft að auka seðlaupphæð

Á 23. fundi í Nd., föstudaginn 12. janúar, kl. 1 miðdegis, var frv. tekið til 3. umr. (A. 156, 159).

Forseti leitaði leyfis til afbrigða til að mega taka frv. til 3. umr. Voru afbrigðin leyfð og samþ. í e. hlj.

Fram kom skrifleg brtt., er síðan var útbýtt á fundinum og hlaut þingskjalsnúmer 159. Voru afbrigði um hana leyfð og samþ. í e. hlj.