12.01.1917
Neðri deild: 26. fundur, 27. löggjafarþing.
Sjá dálk 37 í B-deild Alþingistíðinda. (69)

4. mál, Íslandsbanka leyft að auka seðlaupphæð

Þórarinn Jónsson:

Jeg vildi að eins gjöra þá fyrirspurn til hæstv. stjórnar, hvort hún hafi ekki haft mikinn stuðning af bankanum í fjárhagslegu tilliti, viðvíkjandi ýmsum ráðstöfunum til tryggingar landinu, og hvort hún eigi ekki von á því í framtíðinni.

Þykir mjer það miklu máli skifta, og þótt jeg sje ekki á móti brtt., og yfirleitt algjörlega á móti frekari hlunnindum til Íslandsbanka, þykir mjer þó full ástæða til að taka það til athugunar áður en jeg greiði atkv. með henni.