04.01.1917
Efri deild: 11. fundur, 27. löggjafarþing.
Sjá dálk 46 í B-deild Alþingistíðinda. (758)

5. mál, tímareikningur

Framsm. (Jóhannes Jóhannesson):

Með því engum mótmælum hefir verið hreyft gegn frumvarpi þessu eða breytingartillögur komið fram við það, finn jeg ekki ástæðu til þess, að fara um það frekari orðum, og treysti því, að það verði samþykt eins og það liggur fyrir.