09.08.1917
Neðri deild: 29. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1321 í B-deild Alþingistíðinda. (1092)

72. mál, hagnýt sálarfræði

Frsm. (Bjarni Jónsson):

Jeg sje enga ástæðu til að ræða þetta mál frekar. Jeg vona, að menn sjeu búnir að átta sig á því, að hjer er verið að gera Háskólanum mikið gagn, án nokkurs kostnaðar, og tel því víst, að frv. verði samþykt núna, eins og um daginn.