23.08.1917
Neðri deild: 41. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1876 í B-deild Alþingistíðinda. (1857)

66. mál, gjöld til holræsa og gangstétta á Akureyri

Þorsteinn Jónsson:

Jeg vil taka það fram, að mjer finst ósamræmi í því hjá háttv. þingd., ef hún fellir brtt., en samþ. frv. Háttv. þm. Mýra. (P. Þ.) fanst ekki sanngjarnt að samþ. brtt., en jeg vil þá biðja hann að vera sjálfum sjer samkvæman og fella frv. einnig. Það finst mjer sjálfsagt, því að ástæðurnar fyrir því að leggja ekki þessi 2 umboð niður eru nákvæmlega þær sömu.