22.08.1919
Efri deild: 37. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 1759 í B-deild Alþingistíðinda. (1585)

113. mál, brúargerðir

Fjármálaráðherra (S. E.):

Jeg ætla að eins að geta þess, að þó það hafi verið búið til kerfi fyrir lagningu símanna, er langt í frá, að það sje fullnægjandi. Stöðugt kapp hefir verið um, hvaða spotta skyldi leggja fyrst, og er það kunnugt, hvað þessi mál, þrátt fyrir lögin um símakerfi, hafa oft komið til þingsins kasta.